• Mánudagur 23. október 18:00

    Kalkofnsvegur lokar

    á milli Hverfisgötu og Geirsgötu

  • Þriðjudagur 24. október 11:00

    Frekari lokanir

    Svæðið í kringum Arnarhól (sjá kort, gult) lokar

  • 16:00

    Umferð aftur leyfð að hluta

    Svæðið í kringum Arnarhól (gult á korti) opnar fyrir akandi umferð, fyrir utan Kalkofnsveg frá Geirsgötu að Hverfisgötu (rautt).

  • 19:00

    Lokunum aflétt

    Kalkofnsvegurinn opnar aftur

Götulokanir í tengslum við Kvennaverkfallið

Kalkofnsvegur, milli Hverfisgötu og Geirsgötu (rautt)

Lokað fyrir allri akandi umferð frá kl. 18.00 mánudaginn 23. október til kl. 19.00 þriðjudaginn 24. október.

Svæðið í kringum Arnarhól (gult)

  • Lækjargata frá Skólabrú að Hverfisgötu
  • Hverfisgata frá Ingólfsstræti að Lækjargötu
  • Skúlagata frá Sjávarútvegsráðuneyti, Ingólfsstræti að Hverfisgötu
  • Bankastræti frá Ingólfsstræti
  • Amtmannsstígur frá Skólastræti 

Lokað fyrir allri akandi umferð frá kl. 11.00 – 16.00  þriðjudaginn 24. október.  

Bílastæði

Bílastæði fyrir ökutæki með P-merki

Bílastæði fyrir ökutæki með P-merki verður gengt Skúlagötu 4. P-merktum bílum verður hleypt í gegnum mannaða götulokun.
Pallur fyrir hjólastóla verður á Kalkofnsvegi beint á móti sviði.

Bílastæðahús

Fólk er hvatt til að nýta sér bílastæðahúsin.

Strætó

Þjónusta Strætó tekur breytingum á meðan lokunum stendur.

Kalkofnsvegur milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður lokaður frá 18:00 á mánudeginum til 19:00 á þriðjudaginn. Leið 3 fer Hverfisgötu og leið 14 að fer Sæbraut/Geirsgata í báðar áttir.

Þriðjudagur frá 11:00 – 16:00. Hefðbundin miðbæjarlokun. Sæbraut/Geirsgata verður opin.

Leiðir 3 og 14 fara Sæbraut/Geirsgötu og 1 – 6 – 11 – 12 – 13 fara Snorrabraut út í Háskóla og inn á leið eftir það.

Frekari upplýsingar eru á vef Strætó straeto.is