forsíða1
BREYTUM EKKI KONUM – BREYTUM SAMFÉLAGINU! Nú er nóg komið! Krefjumst jafnra kjara og öryggis á vinnustað! Göngum út 24. október og höfum hátt!
"
If you are not happy with the results below please do another search
BREYTUM EKKI KONUM – BREYTUM SAMFÉLAGINU! Nú er nóg komið! Krefjumst jafnra kjara og öryggis á vinnustað! Göngum út 24. október og höfum hátt!
Í dag er 24. október 2017, en konur á Íslandi gengu fyrst út þann dag árið 1975 til að mótmæla mun á kjörum kvenna og karla, undir yfirskriftinni Kvennafrí. Konur gengu einnig út árið 1985, 2005, 2010 og 2016. Hagstofa Íslands birti í dag nýjustu tölur um launamun kynjanna sem ná yfir árið 2016. Launamunur […]
Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Kvennafrídagurinn vakti verðskuldaða athygli um allan heim. Árið 1985 var haldið upp á kvennafrídaginn í annað sinn og aftur lögðu 25.000 konur niður vinnu. Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í þriðja sinn, og […]
Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Austurvelli, kl. 15:15 undir kjörorðinu KJARAJAFNRÉTTI STRAX! Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir stýra fundi. Kynslóðir kvenna ávarpa fundinn, Guðrún Ágústsdóttir einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM, Una Torfadóttir ungur femínisti og Justyna […]
Við hjá Stéttarfélagi Vesturlands ætlum að taka þátt með því að leggja niður störf og opna húsið okkar fyrir öðrum sem gera slíkt hið sama. Allir velkomnir! Meðal atvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðal atvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri meðaltal atvinnutekna. Samkvæmt því eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum eftir […]
Skólafólk á Seyðisfirði ætlar að hittast á Sólveigartorgi klukkan 15 mánudaginn 24. október, á Kvennafrídaginn, til að taka afstöðu með kjarajafnrétti. Seyðfirðingum er boðið að fjölmenna líka. Fundurinn er fyrst og fremst táknrænn gjörningur án ræðuhalda og eru konur og karlar hvött til að mæta. Til gamans má hér lesa um vígsluna á Sólveigartorgi, sem var þann 19. […]
Konur á Vopnafirði! Göngum út í dag, á kvennafrídaginn! Hittumst kl. 14:38 í Kauptúnskaffi!
Í tilefni Kvennafrídagsins nk. mánudag, 24. október, ætla kvenkyns nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskóla Norðurland vestra á Sauðárkróki að leggja niður vinnu klukkan 14:38 og hvetja aðrar konur til að gera hið sama. Áætlað er að safnast saman við grjótvörðuna milli bóknáms-, og verknámshúsa skólans og ganga fylktu liði í bæinn. Að sögn Ingileifar Oddsdóttur skólameistara […]
Konur! Vissuð þið að: Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38. Þjóðgerður ætlar að bjóða konum í […]
Konur! Leggjum niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkjum liði á samstöðufund á Silfurtorgi á Ísafirði kl. 15:00. Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá […]