Entries by Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir

Yfirlýsing samstöðufunda kvenna, 24. október 2018

Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Yfirlýsing samstöðufunda kvenna, 24. október 2018 Frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum sem deilt hefur verið undanfarið ár á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #MeToo undirstrika að kjaramisrétti er ekki eina misréttið sem konur þurfa að glíma við á vinnumarkaði. Við stöndum hér saman til að lýsa því yfir, […]

Yfirlýsing frá aðstandendum Kvennafrís vegna ummæla dómsmálaráðherra um kynbundinn launamun

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra gerir kynbundinn launamun og Kvennafrí að umræðuefni í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Þar sem færslan hefur ratað í fréttir er mikilvægt að árétta nokkur atriði varðandi kynbundinn launamun og mikilvægi þess að honum sé eytt. Við, aðstandendur Kvennafrís, höfnum því alfarið að ályktanir sem dregnar eru af útreikningum Hagstofu […]

Yfirlýsing baráttufundar kvenna á Austurvelli 24. október 2016

Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Kvennafrídagurinn vakti verðskuldaða athygli um allan heim. Árið 1985 var haldið upp á kvennafrídaginn í annað sinn og aftur lögðu 25.000 konur niður vinnu. Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í þriðja sinn, og […]

Samstaða á Austurvelli og víða um land

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Austurvelli, kl. 15:15 undir kjörorðinu KJARAJAFNRÉTTI STRAX! Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir stýra fundi. Kynslóðir kvenna ávarpa fundinn, Guðrún Ágústsdóttir einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM, Una Torfadóttir ungur femínisti og Justyna […]

Kvennafrí í Borgarnesi

Við hjá Stéttarfélagi Vesturlands ætlum að taka þátt með því að leggja niður störf og opna húsið okkar fyrir öðrum sem gera slíkt hið sama. Allir velkomnir! Meðal atvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðal atvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri meðaltal atvinnutekna. Samkvæmt því eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum eftir […]

Samstöðufundur á Sólveigartorgi á Seyðisfirði

Skólafólk á Seyðisfirði ætlar að hittast á Sólveigartorgi klukkan 15 mánudaginn 24. október, á Kvennafrídaginn, til að taka afstöðu með kjarajafnrétti. Seyðfirðingum er boðið að fjölmenna líka. Fundurinn er fyrst og fremst táknrænn gjörningur án ræðuhalda og eru konur og karlar hvött til að mæta. Til gamans má hér lesa um vígsluna á Sólveigartorgi, sem var þann 19. […]

Konur ganga fylktu liði í Sauðárkróki á kvennafrídegi

Í tilefni Kvennafrídagsins nk. mánudag, 24. október, ætla kvenkyns nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskóla Norðurland vestra á Sauðárkróki að leggja niður vinnu klukkan 14:38 og hvetja aðrar konur til að gera hið sama. Áætlað er að safnast saman við grjótvörðuna milli bóknáms-, og verknámshúsa skólans og ganga fylktu liði í bæinn. Að sögn Ingileifar Oddsdóttur skólameistara […]