Götulokanir í tengslum við Kvennaverkfallið
Kalkofnsvegur, milli Hverfisgötu og Geirsgötu (rautt)
Lokað fyrir allri akandi umferð frá kl. 18.00 mánudaginn 23. október til kl. 19.00 þriðjudaginn 24. október.
Svæðið í kringum Arnarhól (gult)
- Lækjargata frá Skólabrú að Hverfisgötu
- Hverfisgata frá Ingólfsstræti að Lækjargötu
- Skúlagata frá Sjávarútvegsráðuneyti, Ingólfsstræti að Hverfisgötu
- Bankastræti frá Ingólfsstræti
- Amtmannsstígur frá Skólastræti
Lokað fyrir allri akandi umferð frá kl. 11.00 – 16.00 þriðjudaginn 24. október.
Bílastæði
Bílastæði fyrir ökutæki með P-merki
Bílastæði fyrir ökutæki með P-merki verður gengt Skúlagötu 4. P-merktum bílum verður hleypt í gegnum mannaða götulokun.
Pallur fyrir hjólastóla verður á Kalkofnsvegi beint á móti sviði.
Bílastæðahús
Fólk er hvatt til að nýta sér bílastæðahúsin.
Strætó
Þjónusta Strætó tekur breytingum á meðan lokunum stendur.
Kalkofnsvegur milli Hverfisgötu og Geirsgötu verður lokaður frá 18:00 á mánudeginum til 19:00 á þriðjudaginn. Leið 3 fer Hverfisgötu og leið 14 að fer Sæbraut/Geirsgata í báðar áttir.
Þriðjudagur frá 11:00 – 16:00. Hefðbundin miðbæjarlokun. Sæbraut/Geirsgata verður opin.
Leiðir 3 og 14 fara Sæbraut/Geirsgötu og 1 – 6 – 11 – 12 – 13 fara Snorrabraut út í Háskóla og inn á leið eftir það.
Frekari upplýsingar eru á vef Strætó straeto.is