Kvennaverkfall í Vestmannaeyjum

KALLARÐU ÞETTA JAFNRÉTTI? Þann 24. október 2023 munu konur og kvár leggja niður störf í heilan dag til að mótmæla vanmati á vinnuframlagi kvenna og kynbundnu ofbeldi.

Hér í Vestmannaeyjum verður sameinast á Háaloftinu í Höllinni kl. 14:00, en þar verður sýnt beint frá samstöðufundinum á Arnarhóli í Reykjavík og kaffispjall á eftir. Konur eru hvattar til að mæta með skilti en það verða einnig skilti á staðnum. Sýnum samstöðu og mótmælum!

Það eru 48 ár liðin frá fyrsta kvennafrídeginum og verkfallið 2023 verður það sjötta í röðinni. Konur verða enn fyrir kerfisbundnu launamisrétti og kynbundnu ofbeldi sem þarf að útrýma. Við ætlum ekki að bíða lengur eftir aðgerðum!

  • DAGSETNING

    24.10.2023

  • TÍMASETNING

    14:00

  • STAÐSETNING

    Háaloftið í Höllinni Vestmannaeyjum

  • AÐGENGI

    Nokkrar tröppur eru upp á háaloftið, þar eru salerni á hæðinni.

  • TUNGUMÁL

    Íslenska

  • AÐGANGSEYRIR

    Enginn

  • SKIPULEGGJANDI

    Kvenfélagið Líkn