Úrslit hönnunarsamkeppni á barmerki kvennafrídagsins 2010
Kvennafrídagurinn 19. júní var haldinn hátíðlegur í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem hátt í 200 konur komu til að fagna kvenréttindadeginum. Vinningstillögur í hönunarsamkeppni Skottanna og Hönnunarmiðstöðvarinnar voru kynntar. Merkið á að selja til styrktar kynbundnu ofbeldi og mansali og átti að höfða bæði til karla og kvenna.
Einnig var kvennafrídagurinn opinberlega kynntur og hvenær konur ætla að ganga út frá störfum sínum, nýjustu tölur sýna að konur hafa 65.65% af heildar launatekjum karla og geta því með góðri samvisku lagt niður störf kl. 14.25 þann 25. október næst komandi.
Frú Vigdís Finnbogadóttir verður verndari dagsins.
Alls bárust 24 tillögur af barmmerki í hönnunarsamkeppnina. Sigurvegarar hönnunarsamkeppninar eru Hrafnhildur A. Jónsdóttir og Tinna Brá Baldvinsdóttir frá Akureyri.
Þær tóku fram að innblásturinn er sóttur í þrívíddargleraugu. Aðeins með þrívíddargleraugum er hægt að sjá raunveruleikann óbrenglaðan. Nælan á því að minna fólk á að horfast í augu við raunveruleikann og sjá hlutina í réttu samhengi. Lituðu glerin, blá og rauð, minna okkur á að mansal og kynbundið ofbeldi er sameiginlegt vandamál kynjanna. Einnig var veitt viðurkenning fyrir fallegt merki en hana hlutu Anna Valgerður Jónsdóttir og Helga Ósk Einarsdóttir en þær sendu inn skott af fyrirmynd skotthúfu.
