Skotturnar afhentu 12 milljónir

Föstudaginn 25. mars var haldin aðalfundur Skottanna í tilefni þess að eitt ár er liðið frá því að samtökin voru stofnuð.

Um 40 konur mættu á fundinn, Margrét Rögnvaldstóttir sem situr í stjórn Skottanna afhenti 12 milljónir úr sjóð sem safnaðist með sölu kynjagleraugna.

Stígamót fengu 10. milljónir, Aflið á Akureyri 1.350 þúsund og Sólstafir á Ísafirði 600 þúsund.

Halldóra Traustadóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins stýrði fundinum. Fundurinn tókst mjög vel, í lokin var skemmtilegt menningaratriði undir forystu Lay Low.