Skotturnar eru opinn samstarfsvettvangur kvenna, sprottinn upp úr grasrót íslensku kvennahreyfingarinnar. Honum er ætlað að virkja allar konur til aðgerða í þágu jafnréttisbaráttu kvenna, með kvennafrídaginn sem útgangspunkt.
Ertu með hugmynd? Ertu í góðum kvennahópi, í félagi eða á vinnustað sem vill láta að sér kveða á kvennafrídeginum 2010 eða í tengslum við hann?
Skotturnar taka við ábendingum og hugmyndum að viðburðum tengdum kvennafrídeginum 2010. Hafðu frumkvæði. Því fleiri sem við erum og meira sem við gerum, þeim mun betra.
Við erum opnar fyrir öllum góðum hugmyndum. Þær þurfa ekki að snúast um bara sjálfan kvennafrídaginn. Athyglisverðir viðburðir sem tengjast eða túlka jafnréttisbaráttu kvenna geta farið fram hvenær sem er á árinu.
Skotturnar, samstarfsvettvangur íslensku kvennahreyfingarinnar
Eftirfarandi félög og samtök eru stofnaðilar:
- Kvenfélagasamband Íslands
- Kvenréttindafélag Íslands
- Samtök um kvennaathvarf
- Feministafélag Íslands
- Stígamót
- Zontasamband Íslands
- Kvennaráðgjöfin
- Bríet félag ungra feminista
- Unifem
- Samtök kvenna af erlendum uppruna
- Landsamband Soroptimista
- Félag fjölmiðlakvenna
- Sólstafir á Vestfjörðum
- Kvennasögusafnið
- Aflið Akureyri
- Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
- V dagssamtökin
- Delta Kappa Gamma
- Feministafélag HÍ
- Félag prestvígðra kvenna
- Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands
- Félag kvenna í læknastétt á Íslandi
- Félag kvenna í endurskoðun
Nánari upplýsingar og umsjón með heimasíðu heufr Bryndís Bjarnarson (bryndis64hjásimnet.is) S: 8918206
