Dagana 15.-16. október fer fram landssöfnun gegn kynferðisofbeldi. Merkin eru seld í VÍS, Lyf og heilsu og Fjarðarkaup.
Safnað verður fyrir stóraukinni og bættri þjónustu Stígamóta. Þjónustan utan höfuðborgarsvæðisins verður endurvakin, en fyrir efnahagshrunið voru útibú Stígamóta á 7 stöðum á landinu. Jafnframt verður Stígamótum breytt í sólarhringsmiðstöð og í tengslum við miðstöðina verður opnað athvarf fyrir konur sem vilja brjótast út úr mansali og vændi. Þörfin fyrir slíka þjónustu hefur um skeið verið brýn og staðfest af Sérfræðinga og samhæfingarteymi gegn mansali. Skotturnar munu skipta á milli sín kvöld, nætur og helgarvöktum í sjálfboðavinnu.
Til þess að gera drauminn að veruleika þarf þjóðin að leggjast á eitt. Seldar verða nælur í formi gleraugna með bleiku og bláu gleri sem eiga að minna á að bæði kynin eiga að taka ábyrgð á kynferðisofbeldi. Nælan kostar 1.ooo kr. Nælan verður seld við flestar þekktar verslanir landsins og sölukonur koma úr röðum Skottanna og gefa alla sína vinnu við söfnunina.
Enn vantar sjálfboðaliða hafið samband við Bryndísi og Rósu í síma 8918206 eða bryndis64@simnet.is

Lyf og heilsa og Fjarðarkaup eru að selja hana einnig í göngunni í dag