KVENNAFRÍDAGURINN 25.október 2010
Konur gegn kynferðis ofbeldi- Women Strike Back
Konur ganga út af vinnustöðum sínum kl.14:25.
Í Reykjavík hittast konur á Hallgrímskirkjutorgi kl. 15:00 og ganga niður að Arnarhóli - Hallveig landnámskona mun leiða gönguna. Dagskrána má finna hér :KFri_Dagskra_MB[1]
Einnig eru skipulagðir viðburðir á Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og Skagafirði einnig verður fundur á Blönduósi 24. október. Dagskáin á þeim stöðum kemur fljótlega.
Dagskráin er enn leyndarmál, en þó má upplýsa að listakonur í Reykjavík munu vera með uppákomur á hverju götuhorni á gönguleiðinni og göturnar fá nöfn listakvenna sem eru við viðkomandi götu þennan dag.
Dagskráin er helguð baráttu kvenna gegn kynferðis ofbeldi.
Ofbeldi karla gegn konum og börnum er eitt alvarlegasta samfélagsmein samtímans um heim allan. Þrátt fyrir þá hávaðaþögn sem ríkir um þennan djúpstæða samfélagsvanda, birtist hann margs konar móti. Hér á landi er lýsir hann sér m.a. þannig, að ein kona af hverjum þremur sætir grófu kynferðislegu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni.
Þeir dómar sem falla að jafnaði í undirrétti og Hæstarétti eru á hinn bóginn, vart teljandi á fingrum annarrar handar, þó að u.þ.b. 300 konur megi á ári hverju sæta grófu kynferðisofbeldi.
Þótt margt hafi áunnist á undanförnum 20 árum berjast þolendur enn við djúpstæða fordóma.
Kynbundið ofbeldi er sprottið af sama meiði og annað misrétti sem konur standa frammi. Það hefur að hluta til náð að brjótast upp á yfirborðið sem viðurkenndur vandi. Nægir í því sambandi að nefna misréttið sem viðgengst á vinnumarkaðnum og birtist í kynbundnum launamun og almennt minni framamöguleikum.
Flest bendir til að árangur á einu sviði jafnréttisbaráttunnar sé háður þeim árangri sem næst á öðrum sviðum hennar.
